Chat with us, powered by LiveChat
Djúphreinsun og maski – Snyrtistofan Dimmalimm

Opna - Velja - Njóta

Andlitsnudd með maska fyrir einn

Óskaskrín

Djúphreinsun og maski – Snyrtistofan Dimmalimm


Snyrtistofan Dimmalimm veitir fyrsta flokks þjónustu í notalegu umhverfi. Sem handhafi Óskaskríns færð þú djúphreinsun og maska (25mín).

Frábær andlitsmeðferð fyrir alla. Djúphreinsun er mild húðflögnun þar sem dauðar húðfrumur og óhreinindi eru fjarlægð af yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkann hátt. Maskameðferðin hefur svo hreinsandi, rakagefandi, andoxandi eða nærandi virkni eftir því hvað er valið. Meðferðin byrjar á yfirborðshreinsun húðar og svo djúphreinsun með ensímum. Eftir það er borinn maski á húðina sem er valinn eftir húðgerð og þörfum hvers og eins. Á meðan maskinn bíður er gerður slakandi ilmolíuhjúpur. Í lok meðferðar er viðeigandi dagnæring borin á. 


Áhugavert

Dimmalimm býður upp á fjölbreytt úrval meðferða þar sem hver og einn ætti að finna eitthvað við sitt hæfi.

Gott að vita

Meðferð af þessu tagi má fara í vikulega til að viðhalda heilbrigðri og ljómandi húð. Hægt er að auka virkni meðferðarinnar enn frekar og bæta við ampúlu og eða lúxusmaska og/eða uppfæra meðferðina í fulla andlitsmeðferð gegn gjaldi samkvæmt verðskrá.

Hvar

Við erum í Hraunbæ 102a (fyrir aftan Árbæjarblóm), 110 Reykjavík.

Hvenær

Kynnið ykkur opnunartíma á dimmalimm.is Mikilvægt að panta með fyrirvara og afpanta með 24klst. fyrirvara ef breytingar verða.

Bókanir

Hægt er að bóka í gegnum heimasíðuna (noona) allan sólarhringinn hér. Einnig er hægt að hringja í síma 557-5432 á opnunartíma.

Shopping Cart