
Opna - Velja - Njóta
Skemmtilegt golfnámskeið fyrir kylfinga af öllum getustigum hjá Golfnamskeid.is 2 tímar, 1x í 45 mín og 1x í 30 mín
Óskaskrín
Golfnámskeið hjá Golfnamskeid.is
Margeir Vilhjálmsson er boðinn og búinn til að hjálpa þér að verða betri í golfi. Margeir hóf golfiðkun í Leirunni árið 1985. Margeir er menntaður golfvallafræðingur. Starfaði hjá Golfklúbbi Reykjavíkur frá 1995-2006, fyrst sem vallarstjóri og svo framkvæmdastjóri. Margeir var aðalhugmyndafræðingur að uppbyggingu æfingasvæðisins Bása og hafði umsjón með uppbyggingu Korpúlfsstaðavallar hjá GR. Margeir er með MBA gráðu frá HR og stundar nú nám við golfkennaraskóla PGA.