Chat with us, powered by LiveChat
Hótel Laki

Opna - Velja - Njóta

Ein gistinótt ásamt morgunverði fyrir tvo

Óskaskrín

Hótel Laki


Á Hótel Laka verður dekrað við ykkur í einu og öllu. Auk fyrsta flokks þjónustu og notalegra herbergja bjóðum við gestum okkar að reyna fyrir sér í veiði eða fara í gönguferð í faðmi sunnlenskra jökla. Margar þekktustu náttúruperlur landsins eru í nágrenninu, m.a. þjóðgarðurinn í Skaftafelli, Jökulsárlón, Ingólfshöfði og Laki. Við túnfótinn eru einnig merkar náttúruperlur eins og Landbrotshólar sem mynduðust fyrir sjö þúsund árum, Tröllshylur sem er forn farvegur Skaftár og Fjaðrárgljúfur sem liggur við slóðina inn að Laka.


Gott að vita

Takið með ykkur veiðistangirnar, því við bjóðum upp á bleikjuveiði í Víkurflóði!

Hvar

Hótel Laki er að Efri Vík, 5 km sunnan við Kirkjubæjarklaustur. S. 412 4600

Hvenær

Opið allt árið en þetta Óskaskrín gildir ekki frá 1.júní - 15.september. www.hotellaki.is

Shopping Cart