Chat with us, powered by LiveChat
Þjölun og lökkun á táneglur – Snyrtistofan Dimmalimm

Opna - Velja - Njóta

Létt handsnyrting með lökkun

Óskaskrín

Þjölun og lökkun á táneglur – Snyrtistofan Dimmalimm


Snyrtistofan Dimmalimm veitir fyrsta flokks þjónustu í notalegu umhverfi. Sem handhafi Óskaskríns færð þú þjölun og lökkun á táneglur.

Neglur eru klipptar ef þarf, neglur snyrtar með bor eftir þörfum áður en neglur eru lakkaðar með Alessandro naglalakki. Í lokin er nærandi og mýkjandi fótakrem borið á. Lakkið fylgir með meðferðinni svo þú getur viðhaldið lökkuninni heima. 


Áhugavert

Hægt er að uppfæra þjölun og lökkun í fulla fótsnyrtingu, bæta við kornakremi, fótanuddi og eða fótamaska. Einnig er hægt að fá Nailberry naglalakk gegn gjaldi samkvæmt verðskrá.

Gott að vita

Dimmalimm býður upp á fjölbreytt úrval meðferða þar sem hver og einn ætti að finna eitthvað við sitt hæfi. Það er okkar markmið að veita í senn persónulega og faglega þjónustu. Komdu til okkar og upplifðu ævintýralega vellíðan!

Hvar

Við erum í Hraunbæ 102a (fyrir aftan Árbæjarblóm), 110 Reykjavík.

Hvenær

Kynnið ykkur opnunartíma á dimmalimm.is Mikilvægt að panta með fyrirvara og afpanta með 24klst. fyrirvara ef breytingar verða.

Bókanir

Hægt er að bóka í gegnum heimasíðuna (noona) allan sólarhringinn hér. Einnig er hægt að hringja í síma 557-5432 á opnunartíma.

Shopping Cart